Örn Orrason


Tenglar
ólablogg betra
Ólablogg
GSMBLOGG
Vinnan



Dagbókarfærslur
06.04. 2007-08:17:40
Halló
Aðdáendur góðir, ég er kominn með nýtt blogg http://nyrkill.blog.is

góða skemmtun

03.01. 2007-11:17:08
myndin af megrunarferlinum





03.01. 2007-11:16:38
hér er myndin af þyngdarferlinum 2006

02.01. 2007-17:42:02
Skyggnst inní framtíðina (Völvuspá Össa 2007)

Stjórnmál
Geir Haarde myndar nýja ríksstjórn með vinstri grænum og Ingibjörg Sólrún býður afhroð
Fjármál
Fleiri fyrirtæki munu taka upp evruna. Nú er bara tímaspursmál hvenær krónan fer á þjóðminjasafnið. Verðbólga verður 5% og róleg á hlutabréfamarkaði. Bankar hækka um ca 20% en önnur fyrirtæki skila litlu.
Íþróttir
Eiður Smári nær að skora um 17 mörk fyrir Barcelona á tímabilinu 06-07 en verður hvorki spánar-(Chelsea) (Sevilla) né evrópumeistari . Hann á í harðri baráttu við Eto' og verður að lúta í gras. Hann semur við West Ham í sumar og mun spila með Beckham þar næsta haust. Man U verður Englandsmeistari og José Morinho reddar sér með því að verða evrópumeistari. Ísland verður í 8 sæti á HM í handbolta og veldur vonbrigðum sem fyrr. Ólafur Stefánsson spilar sinn síðasta landsleik. Landsliðið í fótbolta endar í 110 sæti á heimslistanum. KR lendir í 3. sæti eftir slaka byrjun en það verða Keflvíkingar sem hampa íslandsmeistaratitlinum


02.01. 2007-17:32:46
Hér er jólakortatextinn sem fylgdi jólakorti fjölskyldunnar

Jólin 2006 Hér er afar áhugaverð ársskýrsla úr lífi og starfi fjölskyldunnar að Hagamel 8. Sigrún Heba varð 2ja ára í febrúar og talaði mikið en fæst skildist. Hún talar ennþá mikið eins og amma hennar úr föðurætt og sem betur fer slæðist íslenska inná milli í æ meira mæli. Hún hóf einnig skólagöngu í september á Hagaborg og líkar bara vel. Hún horfir á Simpsons alla daga og vill ekki sjá neitt barnaefni. Bragi hóf píanónám fyrir ári síðan og hefur iðkað það samviskusamlega og gengur honum bara vel. Bragi (9) er einnig áhugasamur um körfuboltaleik og er í KR en faðir hans gerir allt til að vekja áhuga hans á fótbolta en árangur er takmarkaður. Nú gæti sú framtíð blasað við föðurnum að hann muni ekki eiga atvinnumann í knattspyrnu, en hins vegar bindur hann vonir við golfhæfileikana hans. Ásgerður (12) er núna á síðasta ári í Meló og á 5 .ári í víólunni. Það er lítill unglingur að verða til á heimilinu. Hún fæst mikið við vefsíðuhönnun nú svo er MSN afar mikilvægt. Guðrún vinnur hjá Applicon eins og síðustu árin. Hún er komin í 3 saumaklúbba, sá nýjasti er svona hverfisklúbbur sem sýnir hve gott er að búa í Vesturbænum, hér er svo samheldið fólk. Einnig iðkar hún tónlist af kappi, aðallega í Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og síðan koma styttri verkefni af og til. Heimilisfaðirinn breytti um atvinnuhætti í haust er hann yfirgaf kennitöluna sem hann hefur unnið hjá í 7 ár en má segja að því verkefni sé lokið og er hann bara stoltur af því. Nú leggur hann góð ráð til annarra fyrirtækja, lærir á þvottavélina og hugsar sína framtíð. Þess má geta að um 8% hurfu af honum á árinu á “hamsturshjólinu” í Laugum. Fjölskyldan átti gott frí saman á Bretagne skaga um páskana (Dol de Bretagne) og tók einnig nokkra daga í París. Sumarleyfið var á Laugarvatni í bústaðnum góða í bæði rigningu og steikjandi sól og þangað eru allir velkmnir í heimsókn.

30.12. 2006-19:57:59
Fjöldskylda

Fjölskyldan var hin hressasta. Sigrún Heba sú yngsta (nú 2,8 ára)er bráðfjörug og horfir helst bara á The Simpsons. Bragi er á kafi í körfubolta og píanó og Ásgerður lærir á Víólu. Ásgerður er í 12 ára bekk. Nám þeirra gengur bara vel. Bragi er stærðfræðingur en Ásgerður íslenskufræðingur. Sem sagt ólíkar áherslur hjá þeim. Um Páskana fórum við til Fraklands í frí (Bretagne/París) og var mjög gaman. Sumarleyfið var að sjálfsögðu tekið í bústaðnum þar sem veðrið lék við hvern við sinn fingur.

30.12. 2006-19:53:37
Golfið

ég náði ekki að fylgja eftir árangri ársins 2005 þarf sem ég náið að koma forgjöfinni úr 36 í 23,8. Á árinu 2006 var ég stöðugur að spila á 32-36 punktum. Náði sem sagt aldrei að bæta árangurinn og forgjöfin hækkkaði í 24,5. Ég keypti mér nýtt járnasett í vor en það dugði ekki til. Fór ekkert til kennara og stefni að því vorið 2007 til að fá hlutina á hreyfingu. Bragi er alltaf að bæta sig. Hann fór Dalbúann á 56 höggum. Hann sótti einnig nokkra golfæfingar uppí Oddi þar sem ég er meðlimur.

30.12. 2006-19:50:09

Tónlist

ég sá eftirtalda tónleika þetta árið
- Roger Waters (ásamt Nick Mason) í Egilshöll (****) Hann Roger var bara mjög góður og allt mjög fínt. Tónlistin er þekkt en nokkuð fyrirséð og vélræn á einhvern hátt. Hún hefur semsagt ekki mikið tilfinningagildi fyrir mér
- Sykurmolar í Höllinni. (*****) Bráðskemmtilegir endurkomutónleikar hjá Molunum og hreint út sagt yndislegir. Tónleikar sem hreyfðu við tilfinningum eins og á að vera.

30.12. 2006-19:43:32
Atvinnumálin árið 2006

Þótt ekki sé vaninn að tjá sig um vinnuna í bloggum þá uppfræði ég lesendur örlítið um þau mál. Í byrjun september samdi ég um starfslok hjá Dagsbrún enda farinn að una hag mínum frekar illa þar. Forstjórinn hætti 10 dögum síðar og síðan var ákveðið að Dagsbrún yrði skipt upp í tvö félög. Dagsbrún tilkynnti síðan um mikið tap og í ljós koma að fjárfestingar ársins 2006 höfðu verið félaginu þungar í skauti. Það er kannski óhætt að uplýsa núna að starf mitt hjá Dagsbrún hafi verið mér mikil vonbrigði. Rétt er að upplýsa að ég kom hvergi nærri ákvörðunum um fjárfestingar. Starfið mitt var sem sagt langt frá því að standa við væntingar og þau fyrirheit sem gefin voru. Ég get auðvitað ekki tjáð mig neitt meira um þessi mál eins og gefur að skilja.

Ég var nokkuð ráðvilltur eftir starfið og þeysireið undanfarinna 7,4 ára sem hafa verið áhugaverð og viðburðarrík ár. Í heildina mjög skemmtileg og einstök reynsla. Oft komu erfiðir tímar en það er hluti af verkefninu að sigrast á þeim. Oft voru erfiðleikarnir óþarfir og heimatilbúnir, mannlegir getum við sagt. Ég hef lært mikið og er mjög stoltur af niðurstöðunni sem heitir Vodadone. Ég tel mig hafa lagt fram mikið til þessa fyrirtækis. Nú skal haft í huga að ég var 4. - 6. starfsmaður félagsins (íslandssími í maí 1999) og var lykilmaður í mörgum ákvörðunum. Ég hef lagt mitt af mörkum til að koma á samkeppni á fjarskiptamarkaðnum. Ekkert annað fjarskiptafélag sem fór af stað á þessum árum er lengur til. Ég skal nefna nokkkur nöfn lesendum til upprifjunar

- Lína.net
- Margmiðlun
- Halló Frjáls Fjarskipti
- Títan
- Intís
- TAL

Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa verið keypt af Íslandssíma.

Ég byrjaði á að fara í golfferð til Spánar með félaga Heimi Baldurssyni. Og hóf síðan að vinna sjálfstætt sem ráðgjafi og hefur gengið ágætlega að afla sér verkefna. Ég stofnaði félagið Ráðleggingu ehf. utan um þá SOHO starfssemi. Ég er ekkert á leiðinni í annað starf á næstunni þegar þetta er skrifað.

30.12. 2006-19:08:07
kominn er tími á að rifja upp árið 2006

fyrst er að nefna jákvætt léttunarátak mitt. Ég hef verið of þungur í allmörg ár þrátt fyrir að ég hafi verið sæmilega duglegur að hreyfa mig. Ég ákvað í febrúar að taka skipulega á þessu. Ég fór í Laugar í hádeginu og skokkaði á brettum og skíaðgöngutækjum ásamt því að stunda minn hefbundna fótbolta. Ég hafði svo sem verið í Laugum um árs hríð áður án þess að léttast en ég fór að bæta í og trimmaði mataræðið. Í morgunmat hef ég blandað mér heilsudrykk, hér er uppskriftin
- 2 kúfaðar msk Hreint skyr
- Vatn
- 1/2 Epli
- 1/2 Banani
- 1/2 Pakki Meso Tech (fæst í Hagkaup á 290 kr.)
- 1 gulrót - gott getur verið að bæta vínberum út í og stundum engifer

Oft fékk ég mér próteindrykk í World Class í hádeginu. Brauðáti er haldið í algjöru lágmarki. Þessi formúla hefur virkað vel , a.m.k. framan af og léttist ég hratt í byrjun og náði ég lægstu mælingu 81 kg í lok júní. Kannski er raunhæft að tala um að ég hafi náð 81,5 kg þyngd þá þar sem sveiflur í mælingu geta verið +/- 500gr. Ég byrjaði í 88,7 kg þannig að í raun hefur sveiflan verið um 7 kg þegar mest var. ÞEgar úr sumarfríi var komið hafði Örninn þyngst og hefur í haust reynt að ná sér niður í fyrri lægðir og var að láta sig dreyma um að sjá 7 sem fyrsta staf. Það náðist ekki og endar hann árið á 82 kg sem hann er bara ánægður með. Svo virðist vera sem að 82 kg sé svona þröskuldur sem erfitt er að yfirstíga. Ég hyggst nú samt eyða þessum þröskuldi og venja líkamann á að vera um 80 kg þegar næsta ár er úti. Ég held að sú þyngd muni henta mér vel.

Minni þyngd hefur skemmtileg hliðaráhrif eins og það að ég er mjög góður í hnjánum í fyrsta skipti í mörg ár. Auðvitað er ég mun betri í boltanum, snöggur og hreyfanlegur. Ég farið að geta hlaupa mikið á brettinu og þarf bara að gera enn betur. Síðan hef ég getað farið í jakkaföt sem ég keypti árið 1988 og hef ekki getað farið í ansi lengi. Í stuttu máli sagt þá er þetta afrek ársins hvað mig varðar.


30.01. 2006-10:07:37
Við kepptum í fótbolta fyrir skemmstu við lið frá Allianz. Þar voru kappar eins og Atli Eðvaldsson, Pétur Ormslev og liðstjórinn var Ásgeir Sigurvinsson. Þeir höfðu styrkt sig með ungviði úr 1. deildarliðum og má þar nefna Halldór Hilmisson og gerðu unglingarnir líklega gæfumuninn. Fara litlar sögur af frammistöðu minni en ég var með mín krónisku hnjámeiðsl að reyna eitthvað og uppskar vítaspyrnu.


30.01. 2006-10:02:17
Faðir Internetsins
Faðir Interntesins kom í heimsókn fyrir 4 árum í mínu boði og Íslandssíma. Hérna er hann. Hann heitir Dr. Lawrence Roberts eða Larry Roberts og hefur verið tilnefndur sem einn af fjórum frumkvöðlum Internetsins en hann stjórnaði uppbygingu Arpnetsins svokallaða. Ég birti myndina hér í gamni


30.01. 2006-09:56:49
brauðkrókur og ísskápur


30.01. 2006-09:55:13
Hérna er eyjan sem er með granítplötur, skáp og eldavél inngreyptri


30.01. 2006-09:54:06
Eldhúsið mitt hefur breyst algjörlega. Ég hef fjárfest einum VW Jetta í eldhúsinu og er bara ánægður. Nú vantar bara flísar á vegg, reykgleypi og nýtt ljós fyrir ofan eldhúsborðið. Læt þessar myndir í símanum flakka.
Hér má skú út eldhúsið í átt að ganginum


30.01. 2006-09:50:44
James Bond
Roger Moore áður James Bond og áður æskuhetjan mín dýrlingurinn varð á vegi mínum. Tók ég þá þessa mynd. Roger er á bak við mann og sést ekki á myndinni en lífvörður hans sést.


30.01. 2006-09:42:06
Svon alít ég út í dag, fylgist hægt með hörnuninni


30.01. 2006-09:39:35
Hér er myndin af þeim






30.01. 2006-09:37:46
Bragi körfuboltamaður keppti á KEA skyr móti þeirra Blika í Smáranum um helgina. Liðið stóð sig vel og kann að hafa unnið alla leikina en stigin eru ekki talin á þessum aldri. Venjulega skorar Bragi nokkrar körfur í hverju móti og er með stigahæstu mönnum. Liðið hefur hins vegar styrkst frá því í fyrra með innkomu fótboltastrákanna Eyjólfs, Alberts og Þóris sem eru teknískir og fljótir. Bragi hefur tilhneigingu til að draga sig í hlé og var frekar passívur í þessu móti. Honum hefur ekki farið fram í vetur og þarf að vinna aðeins í tækninni og koma plathreyfingum af stað. Hér er mynd af þessu ágæta liði.


22.01. 2006-00:26:20
Ég er ágætlega duglegur að hreyfa mig. Stunda fótbolta þrisvar í vikur með öðrum bumbum og fer í ræktina (brenni kannski 700 KCal í hlaupatækjum plús lyftingar) svona tvisvar. Sem sagt 5 sinnum. Ég gæti mín í mataræði ágætlega. Dæmigerður morgunmatur væri einn Cherrios diskur og síðan salat í hádeginu með kannski einu brauði. Síðan er bara sá kvöldverður sem boðið eru uppa á H8. Ég er samt alltaf jafnþungur eða um 85-87kg. Ég myndi gjarnan vilja missa svona 5 kg og er orðinn frekar leiður á þessari kyrrstöðu. Ég get eiginlega ekki hlaupið meira sakir hnjánna. Bjór drekk ég lítið - kannski einn í viku.

22.01. 2006-00:21:33
Það er rok úti og snjórinn að fara. Það bar til tíðinda að skíðafæri var ágætt í heila viku og fór ég einu sinni og Bragi tvisvar.

22.01. 2006-00:19:54
Hátt matarverð
Matarverð hefur hækkað um 30% frá því í vor og á sama tíma hefur Evran lækkað um meira ein 10% og dollar eitthvað minn. Söluaðilar tala um að verðið í vor hafi verið vitleysa. Í raun hefur það hækkað um 40% ef gengið er tekið inn. Nú er hafi dæmigerð íslensk umræða hvað valdi þessu og er sem fyrr ekki hægt að búast við að nokkur niðurstaða fáist út úr því frekar en fyrri daginn. Fjölmiðlar sem fyrr alltof veikir til að greina þetta og neytendasamtökin - já hvar eru þau ? Rökin sem komið hafa fram eru
Íslenskar landbúnaðarvörur eru of dýrar (segja söluaðilar = Baugur og Krónan) Tollar og vörugjöld of hár
Álagning of há
Það er ljóst að allt þetta eru faktorar í þessu. Söluaðilar segjast hafa lægstu álagningu í víðri veröld. Ég tel að þeir nái peningum inná annan hátt enda ýmsar leiðir þegar maður á alla keðjuna, þeas innflutninginn, húsnæðið og smásöuverslanir. Stjórnvöld verða að lækka og einfalda vörugjaldatollavaskkefið. Lækkun á því verður síðan að fara út í verðlagið líkt og hækkun gengis. Við þurfum öflugri neytendasamtök.
Ég vill sjá léttvín í búðir

22.01. 2006-00:11:22
Ákvarðantaka og rökræðuhæfni Íslendinga
Það hefur verið afar forvitnilegt að fylgjast með nokkrum fyrirhguðum framkvæmdum og nýgerðum hér á landi. Hér gerist allt áeinhvern tilviljanakenndan hátt og enginn getur oft á tíðum skýrt út af hverju við gerum hlutina á þennan hátt en ekki hinn. Þeir bara birtust í sinni mynd. Lýðræðislegt ákvarðanaferli finnst vart oglangtíma skipulagning hmm hvað er það?
Gott dæmmi um þetta er nýja Hringbrautin sem er eins og monster í borginni og enginn er ánægður með hana. Til hvers að leggja Autobahn inní Vesturbæinn ? Jæja, það voru umræður fyrir um 1,5 ári síðan þegar ljóst var að til stæði að fara í þessa framkvæmd. ég hefði viljað og fleiri sjá þetta fara sem mest neðanjarðar þannig að miðborgin í framtíðinni væri ekki slitin í sundur. Borgarstkóri Þórólfur steig fram og hvæsti og sagði að þessi umræða væri bæði of sein og auk þess væri þetta alltof dýrt. Nú þegar monsterið er komið upp vill enginn eigna sér óskapnaðinn. Fólk úr meirihlutanum í Borgarstjórn er að gefa sig fram eitt af öðru og tala gegn þessu og vll ræða götu neðanjarðar. Ég treysti þessum Reykjavíkurlistaandskotum alls ekki fyrir Borginni og þeir munu ekki fá mitt atkvæði sama hver myndar D listann.
Annað fyrirbæri er hátæknisjúkrahús á lóð Landsspítalans. Allt í einu dúkkar það upp og peningarnir ready. Enginn læknir vill meina að þetta sé nauðsynlegt og síst af öllu að þessi staðsetning sé nauðsynleg vegna nálægðar við Háskólann og flugvöllinn. Rökin fyrir 40 milljarða risfjárfestingu og Pentagonstyle byggingar í miðborginni eru veikar og flestir sérfærðingar segja úreltar. Þetta er er draumur stjórnmálamanna. Þetta hús á eftir að verða algjör skandall.

21.01. 2006-23:50:37
Ég búinn að vera mikið í Danmörku út af vinnunni. Hefur glæðst áhugi minn á Danaveldi við það og hef ég lagt mig eftir því að horfa á Danskar bíómyndir - helst textalausar. Nú nýverið var ég að horfa á "Arven" eftir Per Fly og mæli ég hiklaust með henni. Danir eru alveg frábærir þessar dagana að gera sjónvarpsefni og bíómyndir. Ég legg jafnframt til að Íslendingar hætti þeirri iðju samstundis - slíkur er gæðamunurinn. Ég tel að vegna skapgerðar íslendinga þá verði þeir aldrei góðir á þessu sviði þar sem tjáningin er einhvern vegin stirðleg og heft. Íslenskar persónur í bíómyndum eru tvívíðar og söguþráðinn vantar alla vídd. Gott handrit segir margar sögur samtímis sem fléttast saman - þessu hefur íslendingum ekki tekist að koma frá sér á ræmu. Ég hafði gaman af og áhuga á íslenskum myndum lengi framan af og byrjaði það með Landi og sonum - þeas áhuginn og íslenska kvikmyndavorið almennt. Íslenska kvikmyndasumarið er að mínu mati ekki alveg komið núna réttum aldarfjórðungi síðar. Einhvern vegninn hélt maður að með Börnum nátturunnar væri sjálfstraustið komið sem kannski vantaði en þeiri mynd (sem var þokkaleg) var aldrei fylgt eftir í vinsældum nema þá helst af 101 Reykjavík (sem mér finnst ekki ýkja merkileg mynd). Ég man að það var myndin Bíódagar sem slökkti í mér trúna á íslenskum kvikmyndum og hún hefur ekki komið aftur. Ég hef reynt að sjá sem flestar myndir en engin þeirra finnst mér þannig að þær lifi af sem heilsteypt listaverk og allar munu falla í gleymskunnar dá. Það er þó ein sem mér fannst ansi góð og fyndin sem svört komedía en það er Sódóma Reykjavík og hún hefur költ status. Hafið og Fálkar - ég spyr af hverju voru menn að eyða pening og tíma í þessar myndir - þær hafa ekkert fram að færa.
Kannski er ég bara neikvæður...

21.01. 2006-23:35:58
Börnin taka völdin ég fæ nánast aldrei að horfa á sjónvarpið heima fyrir krökkunum. Í kvöld tókst mér að semja við Braga að fá að horfa á Real Madrid leik í 20 mín. Reyndar komu öll 4 mörkin á þeim kafla. Nú er búið að loka sjónvarpsherberginu og sitja þar 3 frændur að horfa á Simpsons. Svona eru laugardagskvöldin..

21.01. 2006-23:30:32
Gott og blessað árið
Hér er allt í háblessuðu jafnvægi. Heilsan er góð hjá öllum nema hvað sú litla hefur verið slöpp síðustu 2 daga. Hef ég verið meira og minna heima og innandyra þar af leiðandi og er mygla farin að setjast á mig. Annars er Sigrún Heba heilsuhraust og varla fengið kvef í vetur, að minnsta kosti vart mælanlegt á skala íslenskra barna. Hún var komin með kvef í september en það var þurrkað upp í Spánarferð sem ég minnist á hér að neðan. Nú er Sigrún 23 mánaða og framfarir í talgetu orðna nokkuð örar. Lengi vel stóð á tali hjá blessaðri og var hún mörgum mánuðum á eftir systur sinni í þeim efnum. Í gær kom fyrsta tveggja orða setningin hjá henni, "meira djús". Meðal orða hj´ahenni eru "Össi", "Pabbi", "Mamma", "Ásger", "Bra" fyrir Bragi,"Bra Bra", "drekka", ´"búið", "djús", "skyr", "uppi", "amma", "úti", "skór", "sokkar","úlpa", "húfa","dúkka", "snudd", "lita"

19.11. 2005-11:23:15
hmm


19.11. 2005-11:22:48
myndin aftuir (þolir ekki íslenska stafi)

19.11. 2005-11:22:13
Hetjan mín
----------------------
Eytt hefur skipt mig miklu máli í lífinu og það er tónlist. Sumir tónlistarmenn hafa síðan talað beint við hjartað í manni og lyft mér á æðra stig með tónlist sinni. Slík tónlist upphefur allan hversdagsleika og sannfærir mann um að það sé til eitthvað æðra. YES er hljómsveit sem hefur borið af í gegnum tíðina og andlegur leiðtogi hennar er Jon Anderson. Það var eintakur atburður að heyra í honum í Háskólabíó og tárin streymdu slíkur töframaður er þessi "maður". Ekki var síðra að fá að heilsa uppá hann. Enn einn merkisatburðurinn á þessu skringilega hausti


19.11. 2005-11:21:41
Hetjan mín
----------------------
Eytt hefur skipt mig miklu máli í lífinu og það er tónlist. Sumir tónlistarmenn hafa síðan talað beint við hjartað í manni og lyft mér á æðra stig með tónlist sinni. Slík tónlist upphefur allan hversdagsleika og sannfærir mann um að það sé til eitthvað æðra. YES er hljómsveit sem hefur borið af í gegnum tíðina og andlegur leiðtogi hennar er Jon Anderson. Það var eintakur atburður að heyra í honum í Háskólabíó og tárin streymdu slíkur töframaður er þessi "maður". Ekki var síðra að fá að heilsa uppá hann. Enn einn merkisatburðurinn á þessu skringilega hausti


19.11. 2005-11:17:13
hér má sjá hvað komið er af nýja, ég sendi vonandoi glæsilegar myndir þegar það er komið í gang


19.11. 2005-11:16:33
meira af gamla eldhúsi






19.11. 2005-11:16:06
Eldhús og nýir tímar
--------------------
Í haust eru krossgötur í flestu. Ég tek breytta stefnu í atvinnumálum. kaupi mér sumarbústað og byggi algjörlega nýtt eldhús. Ég er með sömi konunni -. Þetta er umgjörðin en ég segi og finn það á mér að það eru krossgötur hjá mér, ég veit ekki alveg hvert verið er að leiða mig, fylgist bara með hér..


19.11. 2005-11:11:45
Vinna
--------------------
Vinna hjá mér breyttist síðla sumars. Stofnað var fyrirtæki tuan um 365 og Og Vodafone Dagsbrún að nafni og nýr forstjóri ráðinn inní Og Vodafone. Ég færðist inn í Dagsbrún sem CTO (Chief Technical Officer). Þetta eru miklar breytingar fyrir mig og þegar ég skrifa þetta má segja að ferlinu sé alls ekki lokið. Áður en ég hóf störf hjá verkalyðsfélaginu fór ég í frí til Spánar með Sigrúni sætu Hebu sem var einkar gefandi


19.11. 2005-11:07:03
Hljómsveitin
------------------
Hljómsveitin fræga sem nú hefur heitið ÓÓM (ekki allir sammála um ágæti þessa nafns) tók eitt gigg í sumar í brúðkaupi nokkru. Við spiluðum í eina 3 tíma og höfðum gaman af. í Haust urðu smá mannabreytingar er Friðrik Halldórsson Gildruspilari kom í stað Sibba sem hefur lagst í kvöldnám og stefnir á stúdentspróf. Við leigðum okkur betra húsnæði og erum að byggja upp smá upptökuapparat í kringum það. Hér fylgir mynd af því


19.11. 2005-11:02:41
Málefni : Sumarbústaður
---------------------------->BR> jáj, einhvers staðar hér fyrir neðan má lesa um sumarhússplön mín. Þau breyttust allverulega í byrjun ágúst þegar ég gafst upp á samstarfinu við smiðinn. Loforð eru merkingarlaus meðal iðnaðarmanna og ég tek ekki þátt meira í þesari frústration. Ég fór því af stað og fann mér notaðan bústað. Leitin tók ekki langan tíma og staðnæmdist ég á Laugarvatni hvar ég fann nokkuð snoturt sveitasetur. Um er að ræða 70 fm. tvöfaldann burstabæ með svefnlofti. Mikið stofurými einkennir bústaðinn og stór og góð eignarlóð umgirt háum trjám. Mjög skjólsælt er þarna og spennandi verður að eyða góðvirðisdögum þarna næstu árin. Við fengum að fara í bústaðinn um mánaðarmótin ágúst / september og höfum gist nokkrum sinnum. Ég hengi hér nokkrar myndir


19.11. 2005-10:51:15
já og forgjöfin fór úr 36 í 24.5. Markmið næsta árs eru að koma mér undir 20.

19.11. 2005-10:50:17
geri hér tilraun til að taka saman síðustu mánuði í lífi mínu
SUMARIÐ....................
Framfarir héldu áfram í golfinu og náði ég þeim einstaka áfanga að fara 18 holur undir 100 eða á 98 höggum á Oddi. Besti hringurinn þar var 48 högg á Oddi en því skori náði ég þrisvar minnir mig. Ég náði 49 höggum á GR og spilaði iðulega á um 50 höggum - hér á ég við 9 holur fyrir óupplýsta lesendur. Spilaði einnig víða um land (Húsafell 45, Egilsstaðir 45, Dalverji Laugarvatni 43). Um haustið spilaði ég tvo hringi á Spáni með öðlingnum Hilmi Elíssyni sem var mjög gaman. Ég gekk auk þessa í golfklúbbinn Odd í vor en þeir eiga frábæran völl í Heiðmörkinni. Ekki var vorveðrið uppá marga fiska og byrjaði golfvertíðin ekki af krafti fyrr en ´síðla í júni eða um mánuði síðar en æskilegt væri (norðankuldi). Var spilað af krafti í svona 5 vikur. í ágúst var lagst í ferðalög og mun minna spilað á Oddi. Haustið var fremur endaslpett enda haustaði snemma og nýtingin á kortinu frekar stutt. Þetta verður örugglega betra næsta sumar.

23.06. 2005-00:11:51
bloggleysi hrjáir mig en það er af því ég stunda grimmt GSMblogg (linkur til vinstri). Hvað er að frétta, jú ég náði loksins 9 holum undir 50 höggum, nanar tiltekið á 49 höggum á Oddi þann 20. júní. Í kvöld fórum við Bragi og fórum tvo hringi á Ljúflingi. Ég spái því að hann velgji mér undir uggum eftir 2-3 ár. Golf hentar honum vel og já hann fór eina holuna á pari. Smiðurinn sem ætlar að smíða bústaðinn fyrir mig er sífellt að draga það hefja smíði. Einhver staðar neðar hér á síðunni segir að ég ætli að klára í júlí/ágúst. Nú er ég ánægður ef grunnurinn verður risinn þá .. aaargh.

28.03. 2005-12:47:56
þið takið kannski eftir því að stundum vantar orð í textann. Nú er svo að ekki er hægt að leiðrétta í þessu kerfi og verða þessir gallar að standa en oft sé ég ekki þessa vöntun þegar lesið er yfir í fyrsta skipti. Einhver heilagalli.

28.03. 2005-12:45:54
Gítarframfarir miklar. Ég lærði minor/moll skalann á gítarinn og sólóaði afar fallega yfir Presley. Leitt að geta ekki leyft ykkur að heyra en það er kikk a læra nýtt og ná valdi á nýjum hlutum.

28.03. 2005-12:44:24
Þegar komið var í hljómskálgarðinn voru allir í stuði


28.03. 2005-12:43:09
Myndin aftur






28.03. 2005-12:41:50
Á laugardag fyrir páska kom þetta fína veður - úr glugganum allavega - og ég hljóp út í búð til að kaupa hjólastól hana Sigrúnu Hebu. Síðan var farið í fyrstu hjólfreiðaferðina og Bragi á nýja 24" Mongose hjólinu.


28.03. 2005-12:40:07
Á Fimmtudaginn tók ég krakkana til að taka á móti Bobby Fischer. Hann lenti í einkaþotu klukkan 23.11 og strunsaði út í Range Rover þar sem Stöðvar 2 menn rændu honum til að taka við hann einkaviðtal. Frekar óvirðingarlegt hjá þeim þar sem fjölmiðlamenn víðanæva að biðu og ekki síst beið þarna undirbúningsnefndin með blóm handa hinum kexruglaða Fischer en fékk ekki afhent. Fischer byrjaði síðan daginn á eftir á blaðamannafundi þar sem hann úthúðaði Gyðingum og gerði einn blaðamanninn. Ég er verulega efns um að dvöl Bobbys hér verði okkur til framdráttar en frá mannúðarsjónarmiðum var rétt að frelsa þennan sjúkling.


28.03. 2005-12:33:48
Nú er annar í páskum sem mér finnst besti páskadagurinn. Þetta eru búnir að vera nokkuð hlýir í Reykjavík hvar ég hélt mig en hitinn hefur verið milli 7 og 10 stig á mælinum mínum. Hins vegar sló framtíðarbúsetustaðurinn öll met. úr MBL.IS
Óvenjuleg hlýindi hafa verið á landinu um páskana, að því er fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofunni. Á laugardaginn fyrir páska mældist hitinn yfir 15°C á Norðurlandi, bæði á Dalvík og á Sauðanesvita við Siglufjörð. Á páskadag urðu hlýindin mest í Borgarfirði. Varð hitinn hæstur 17,3°C á Húsafelli. Er það hæsti hiti sem mælst hefur í marsmánuði í Borgarfirði

06.03. 2005-22:01:57
myndin aftur, þetta bloggkerfi tekur ekki nöfn með íslenskum stöfum


06.03. 2005-22:00:39
Ég hef áður bent á þá staðreynd hér á síðum að ég er að fara að byggja bústað. Nú um daginn keik ég á staðinn og mældi jarðvegsdýpt. Hann er um 80 cm. Brátt verður hafist handa við grunnbyggingu og smíði heins eiginlega bústaðar. Ég vona að hann verði upprisinn í júli/ágúst. Já eiginlega þarf það að gerast. hér má sjá mynd sem er tekin úr lóðarstæði og sýnir innkeyrsluna út á veg.


06.03. 2005-21:50:45
Mikil hlýindi hafa verið hér á landi undanfarna daga. Hitinn hefur verið frá 4-8 stig og í dag sá ég 7,7 stig á mælinum og sólin skein. Það er svona early vor í lofti. Nágrannar mínir sitt hvorum megin sem að öllu jöfnu strunsa beint inn og út í bílinn sáu ástæðu til að kasta kveðju á mig í dag. Svona á þetta að vera - þ.e.a.s. veðrið á þessu guðs volaða landi því þá eru allir svo glaðir. Ég tékkaði á víðinum í garðinum og hann er farinn að pota sér út á sníplegan hátt. Hér er mynd en fókusinn á sprotann er ekki sem bestur enda tekið á GSM síma, K700 nánar tiltekið. Á veðurkortinu var hitinn 7 gráður í Reykjavík kl. 18


06.03. 2005-21:49:24
Mikil hlýindi hafa verið hér á landi undanfarna daga. Hitinn hefur verið frá 4-8 stig og í dag sá ég 7,7 stig á mælinum og sólin skein. Það er svona early vor í lofti. Nágrannar mínir sitt hvorum megin sem að öllu jöfnu strunsa beint inn og út í bílinn sáu ástæðu til að kasta kveðju á mig í dag. Svona á þetta að vera - þ.e.a.s. veðrið á þessu guðs volaða landi því þá eru allir svo glaðir. Ég tékkaði á víðinum í garðinum og hann er farinn að pota sér út á sníplegan hátt. Hér er mynd en fókusinn á sprotann er ekki sem bestur enda tekið á GSM síma, K700 nánar tiltekið. Á veðurkortinu var hitinn 7 gráður í Reykjavík kl. 18


06.03. 2005-21:34:24
myndin af gítarnum


06.03. 2005-21:34:04
Ég keypti mér nýjan gítar um daginn. Hann er með eðaltón - mikið sustain a la Fripp. Hann heitir Gibson Les Paul og kostaði fullt af peningum. Fékk hann reyndar á góðu verði þar sem Vogel nokkur skírður Þröstur flytur þetta inn á hagstæðu gengi frá USA.

06.03. 2005-21:31:27
Myndin af liðinu





06.03. 2005-21:29:43
Um helgina var körfuboltamót í Keflavík hjá Braga og jafnöldrum hans. Þetta var annað körfuboltamót kappans og stóð hann og liði sig vel. Þeir töpuðu fyrsta leiknum fyrir eldri strákum úr Keflavík en rúlluðu upp jafnöldrum frá Breiðabliki, Njarðvík og Fjölni.

Braga fer fram og gefur góðar sendingar. Hann drífur lengst guttunum og tekur mikið af langskotum. Sum þeirra rötuðu meira segja ofan í. Leikur númer 3 var klukkan 8 um morguninn og þurftum við því að leggja af stað klukkan 7.15 og vorum mættir 7.53. Andkristið í alla staði þar sem þetta er á sunnudögum. Ég tók Braga og aðra gutta með mér í sund. Einn þeirra hvíslaði að Braga (ég heyrði) - heyrðu Pabbi þinn er með bumbu. Þessu er ég alveg ósammála. Aðilinn sem sagði þetta heitir Hlöðver Hákonsson en það fer ekki lengra.




06.03. 2005-21:07:13
kominn er mars og ég skreif síðast hér í júlí. Ég mun ekki taka saman atburði síðasta árs enda ekki tilgangur bloggsíða, þær eiga að fanga hugarástand, fanga núið. Annars má finna daglegt myndablogg mitt á http://orn.gsmblogg.is

22.07. 2004-09:02:48
Nokkrar myndir frá bílastæðarokki 18. júní 2004. Við spiluðum þarna yfir 30 lög og sýnishorn af þeim má finna á http://orn.itn.is/video/hljomsveitasidan.html


21.07. 2004-23:34:12
Golf þið getið séð golf report frá því í júlí í fyrra og nú er komið að svipaðri samantekt. Í fyrra byrjaði ég snemma að spila og spilaði mikið. Ég komst því í ágætis stuð í júlímánuði. Slíku stuði hef ég ekki náð í sumar og árangurinn er eftir því Korpa 28. júní 65 og 56 högg Oddur 8. júli 53 högg. Hér fór ég 16. braut á Erni eða Eagle. 2 högg á pari 4 !! Grafarholt 19.7 57 og 59 högg Grafarholt 21.7 58 og 62 högg. Í fyrra fór ég Grafarholtið á 51 + 57 eða 108 höggum. Þess má geta að Patrekur fór Grafarholtið á 96 höggum þann 19.7. Þetta er ótrúlega gott hjá honum þar sem hann spilar ekki mikið, nánast bara á Íslandi. Þetta er í fyrsta sinn sem hann fer undir 100. Á mánudag mun ég spila Texa Scamble í boði Nýherja með frægum golfurum Trevor Immelman frá Suður Afríku og Tony Johnston frá Zimbawbe. Tony vann m.a. Ernie Els á móti 1998.

21.07. 2004-23:23:45
hvað hefur nú dagana drifið síðan síðasta blogg. Jú, meðal annars, Spánarferð með fjölskyldunni 27. maí - 9. júní. Ég fór í kjölfarið með Heimi B. í YES konserttúr um Þýskaland og sáum við hinar öldnu hetjur í Munchen og Karlsruhe. Þetta voru frábærir tónleikar og sér í lagi í Muenchen hvar við lifðum okkur mjög inní þá. Sigrún Heba þrífst vel og er mjög sposk og glöð týpa. Hún er rólynd og íhugul og þykist ég sjá að þetta sé hennar upplag. Hún hefur rólyndið úr Braga og skvísulegt útlit frá Ásgerði. Ég hef annars ekki tekið mikið frí nema hálfan og heilna dag af og til. Það var gaman að fara til Akranes með Braga á fótboltamót 7. flokks. Bragi stóð sig ágætlega og skoraði 3 mörk í 7 leikjum. Ástþór vinur hans var einnig drjúgur og sennilega voru þeir tveir fremstir í markaskorun. Þjálfarinn setti þá í vörnina sem var misráðið þar sem þeir voru komnir fremst fyrr en varir.

02.05. 2004-00:44:02
Var ég búinn að segja ykkur að ég keypti nýlega leigurétt á lóð á Húsafelli. Nú standa yfir skoðanir á einingarhúsum en í sumar verður byrjað á grunninum. Skoðið http://www.husafell.is/sumarhus/yfirlitskort.htm og ér númer 16 efst til vinstri

02.05. 2004-00:41:04
Hér er nýleg mynd af bandinu - mynd þessi er tekin eftir morgunkonsert okkar á Kjarvalsstöðum 16. apríl. Þar spiluðum við 3 lög - Nirvana/Smells like teen spirit, Beatles/Come together og The Jets/Vodafone lagið. þetta tókst ágætlega og gaman að spila á þessum merka stað.


02.05. 2004-00:34:32
og meira






02.05. 2004-00:34:06
laufin búin að ná nokkurn veginn fullri stærð


02.05. 2004-00:33:28
og svona leit þá grasið út eftir sláttu


02.05. 2004-00:31:47
Frídagur verkamanna. Í dag ætlaði ég vera duglegur og setja renniglerhurð fyrir framan baðið en þá þurfti auðvitað að vera lokað í Vatnsvirkjanum vegna þessa frídags. Nú eru verkamenn flestir af erlendu bergi brotnir og því ætti þessi dagur að heita frídagur útlendinga. Löbbuðum niður í bæ með lítlu dóttur sem heitir Sigrún Heba og drógum Braga með. Okkur þótti nauðsynlegt að draga Dr. Braga úr tölvunni en nú er svo komið að Braga finnst ekkert spennandi nema tölvan. hvað skyldi verða úr þessum strák? Æfði í dag á gítar Heroes sólóið með hjálp gítareffekt græjunnar Digitech DP300 sem ég keypti á eBay. Hugmyndin er að prufukeyra lagið á morgun á æfingu og ef vel tekst til fæytjum við a.ð public 18. júní. Lagið er klassík og fæ ég aldrei nóg af því. Annars hefur verið erilsamt undanfarið í vinnunni. Ég hlakka til að komast í frí. Í dag var fyrsti sláttudagur - hér fylgja myndir af status gróðurssins sem hefur heldur betur tekið við sér. Í fyrra sló ég 28. apríl sem þýðir að annað árið í röð er gróður á undan áætlun.


12.04. 2004-09:59:08
Í gær náðist þessi fína brosmynd af Lillu


11.04. 2004-12:48:11
Ljóst er að tækniframfarir einsog Internetið hafa auðveldað hryðjuverkahópum að skipuleggja sína starfssemi. Og ég tek þátt í því. Mannkynið kann ekki að fara með það frelsi sem tækniframfarir veita.

11.04. 2004-12:46:53
Hryðjuverk og hryðjuverkaógn. Það er eins og heimur fari versnandi. Hryðjuverk eru svo sem ekki ný af nálinn, allir muna eftir RAF og IRA. Þeirra hryðjuverk voru þó minni í sniðum en þessi stórfelldu hryðjuverk 11. sept. NY og 11. mars í Madrid. Hér er stefnt að því að drepa sem flesta í einu á meðna hin fyrri snéru kannski að einum þekktum aðila. Líklega hafa þeir ætlað að sprengja upp aðallestarstöðina í Madrid. Síðan eru stöðug hryðjuverk í Írak á milli þarlendra trúarhópa og gæsluliða. Bush er sá sem kom þessu af stað með innrásinni og ég hef ekki tölu á hversu mörg tugþúsund manna hafa látist síðan innrásin hófst. Undanfarið hafa 400 Íraka fallið í Fallujah og einhver Shítaklerkur að nafni Sadr vill upreisn gegn setuliðinu. Það mun ganga mjög illa að koma á lýðræði og friði þarna. Ef þið lesið þetta ári eða svo síðar þá munuð þið enn lesa fréttir af mannskæðum árásum í Írak.

11.04. 2004-12:40:22
Ég dró 10 manns í Páskaknött- hópur úr vinnuboltanum sem mætti á gervigrasvöll við Valhúsaskólann og iðkuðum við knött í 90 mínútur. Ég á því inni fyrir páskaeggsáti. ég var að vanda frábær og skoraði allavega 10 mörk í öllum regnboganslitum.

11.04. 2004-12:36:28
Guðrún og Lilla Arnardóttir sem er 44 daga gömul


11.04. 2004-12:35:26
Trén farin að taka vel við sér


11.04. 2004-12:34:39
Hér má sjá Braga og Ásgerði snæða eggin sín yfir Popp Tíví. Nóí serious no6


11.04. 2004-10:03:54
Sonur minn er tölvufíkill. Hann fær að fara 3 daga í viku í tölvu - fös til sun. Í dag er páskasunnudagur og þá borða börn páskaegg og hlakka til þess. Bragi var mættur í tölvuna klukkan 8:30 í Bonkheads að reyna við metið sitt sem eru 62 borð. Hann vildi ekki borða páskaeggið sitt í dag - ætlaði að geyma það fram á morgun. Þannig getur hann náð hámarksnýtingu út úr tölvudeginum. Ásgerður systir var frekar fúl enda enginn félagsskapur við átið. Ég na´ði tímamótasamningum við Braga en hann er þannig að tölvudagurinn færist á mánudaginn og samþykkti hann tilboðið strax. Nú borða systkynin páskaeggið saman yfir Popp tíví sem Ásgerður mænir stíft á þessa dagana. Bragi tölvufrík !

11.04. 2004-09:58:50
Ég fór á CeBit í Hannover fyrir skemmstu og flaug beint frá Dublin hvar ég var í hvataferð með vinnunni. Flaug frá London Stanstead með Air Berlin í frekar nýrri og afar hljóðlátri Boeing 737-800 þotu til Hannover. Í aðflugi var greinilega eilítið vindasamt en vélin vaggaði nokkuð í um 100 metra hæð og fór aðeins um mann því vanalega eru þær ekki að haga sér þannig á þessum stað. Þegar örfáir metrar voru eftir á jörðu var eins og slakað væri á snúningi hreyflanna og vélin skellur með töluverðum hraða á flugbrautinni og glumdi í vélinni. Vélin skoppar svo aftur upp úr lendingu og skellur í annað sinn, síðan þriðja og lendir ekki fyrr en í fjórða sinn og í hvert sinn var þetta talsverður skellur þannig að maður bjóst ekki við að hjólastellin þyldu þetta. Satt að segja reiknaði ég með að þetta væri mitt síðasta því mér fannst flugmennirnir vera búnir að missa alveg tökin á skrokknum og hún myndi brotna og snúast á brautinni. Þegar vélin rann loksins eftir brautinni var ljóst að farþegar voru í sjokki og sjálfur skalf ég og nötraði af hræðslu. Í hátalarkerfinu hljómaði "Welcome to Hannover" líkt og ekkert hefði gerst. ég leit á hjólbarðana og sýndist allt vera í lagi. Rétt fyrir ferðina var mér sent myndband af þotu sem kom hratt til lendingar og botnaði í tvennt við það ! Mæli með íslenskum flugmönnum !

11.04. 2004-09:47:09
Veður: 7 gráður og blautt Gróður hefur tekið vel við sér og er sennilega 3-4 vikum á undan meðalári. Öll tré eru að laufgast og þannig eru öspin og reynitrén í garðinum komin með 2 cm sprota og víðirinn og Blóðheggurinn ekki síðri. Í fyrra sló ég garðinn þann 28. apríl eins og sjá má hér á blogginu og verður fróðelga að sjá hvort ég "slái" það met í ár. Mars var 4 gráður yfir meðalaári. Ber að fagna þessu ?

11.04. 2004-09:17:25
Síðan er fleira sem hefur daga mína drifið en dóttirinn. Hún verður annars skírð 18.apríl og nafnið ófundið enn. Alveg satt. Nú erum við komin í sumarbústaðahugleiðingar en ég hef fest mig á lóð í Húsafelli. Staðinn má sjá á yfirlitskortinu http://www.husafell.is/sumarhus/yfirlitskort.htm en við erum á lóð númer 16 efst til vinstri milli tveggja afleggjara merktum Niðurskógi og Hraunskógi. Við erum eiginlega beint fyrir ofan Niðurskóginn. Þar erum við í skjóli hraunsáss að norðan og austan. Við erum nú að komast í gang með að skoða markaðinn fyrir sumarhús og velta fyrir okkur hvað við viljum og hvernig það skal byggt. Líklega byrjum við á að koma upp grunni, aðkeyrslu og rotþró í sumar. Það er margt í boði og margir að flytja inn og smíða bústaði. Á maður að spenna bogann hátt og byggja kein-kompromiss bústað eða vera vernunftig og reisa eitthvað sem unnt er að borga á 3-5 árum. Ég hallast að milliveginum og vill reisa sæmilega myndarlegt hús en ekki sumarkofa. Ég hlakka til að komast í sveitina þegar mér hentar og skreppa síðan í golf á staðnum. Í gær var farið í smá skoðunarferð til Þorklákshafnar og Hveragerði hvar menn eru að smíða bústaði. Þeir voru allir með hefbundnu lagi en einn þeirra sem var stærstur hvar þakformið var brotið upp fangaði augun okkar. Fylgist mér HÉR !

11.04. 2004-08:57:37
ekki nema 6 mánuðir frá síðasta bloggi.. ferlegt hvernig tíminn líður en 6 mánuðir eru meira en 0,5% af ævinni að öllum líkindum. Hvað hefur helst gerst síðan síðast? Hæst ber að sjálfsögðu fæðing dóttur minnar 27. febrúar. Hún fæddist með mikið og sítt dökkt hár sem er orðið nokkurs konar vörumerki barna okkar. Heilsa hennar hefur verið með ágætum. Hún fæddist 3960 gr., 52,5 cm sem eru kennitölur yfir meðallagi af okkar börnum en hún var líka kominn um það bil 2 vikur fram yfir. Þyngd hennar fór niður í um 3500 gr. og er síðan komið eitt kíló aftur upp og áhyggjum af því máli er létt. Nú er hún 6 vikna og farin að brosa lítillega við þeim atriðum sem sett eru upp til þess arna. Þannig þótti mér hún brosa við mér í gær og sama gilti nú í morgun sem er jú enginn annar en Páskadagsmorgun. Aðrir fullyrða að bros hafi komið fyrir um viku síðan en það er spurning hvað menn vilja sjá mikið úr svipbrigðum hennar. Hún er farin að horfa aðeins í augun á manni og andlit en hefur viljað horfa aðallega til hliðar og granskoðar myndir og mynstur. Hér er mynd af henni 3ja daga gamalli


05.10. 2003-10:31:51
Þegar ég hef einu sinni sent frá mér blogg þá get ég ekki lagað stafsetningu. Ég er sem sagt að taka She´s a honky tonk woman en það skiptir ekki máli því nóg er að hafa upphafsstaf og lokastaf réttann. Annars vill ég benda á bloggsíðu listamannsins, lífkúnstlerins, arkitektsins, kennarans, Manhattan búans og heimspekingsins Ólafs Þórðarsson http://www.dingaling.net/blogg.htm. Hér birtist manni hugarheimur manns sem veröldin er að reyna a skilja. Kannski er hann á undan tímanum, við skulum vona það. Ólafur er náfrændi minn og ég er fyrirmyndin hans því ég er einu ári eldri. Á vefsíðu hans kemur fram að sambýliskona hans á von á barni. Við skulum vona að það sé barn Ólafs. Ólafur hefur hins vegar ekki sagt mér frá þessum atburði.


05.10. 2003-10:19:40
þessar mydnir eru svo óskýrar að ég bæti enn einni við, hér syng ég She´s a honky tonk woan


05.10. 2003-10:17:34
Hér má sjá kappann taka Jón er kræfur karl og hraustur


05.10. 2003-10:14:14
Hér er mynd af hinu fræga giggi á árshátið


03.10. 2003-16:09:25
Kíktum á Fd og sáum hljóðendurvarpsmyndir. Fínar myndir og allt í sóma, mikill léttir í bili. Myndatökuaðili var fínn og skýrði vel út. Annars hef ég verið slappur í dag og fór heim í hádeginu. Gat þá nýtt tækifærið og skrifað skýrslur sem hefur legið lengið fyrir.

24.09. 2003-23:36:16
Ég hef verið latur við bloggið og hyggst hér endurbæta þann gjörning. Nú hefur enginn boðið mér í hljómsveit síðan ég var í Hagaskóla en þá bauð Einar Örn Benediktsson mér að vera í hljómsveit á árshátiðinni 1977. Ég hafnaði á þeim forsendum að ég kynni ekki hljóðfærarleik. Einari fannst það eflaust kostur enda var ekki gerð slík krafa í þessa hljómsveit sem síðar myndaði grunninn að Purrki Pillnikk. Nú um daginn ákvað ég að bæta úr þessu þegar ég smalaði í hljómsveit fyrir árshátíð Og Vodafone. Forstjórinn fékk að vera með enda vissi ég af áhuga hans að troða upp og flytja Wild Thing. Við sömdum við hljómsveitina Buttercup um aðstöðu og æfðum okkur samviskusamlega í 2 vikur fyrir tíðina. Æfð voru fimm lög og ég söng eitt þeirra, Jón er kræfur karl og hraustur. Hin lögin voru - Honky Tonk - Riddari Götunnar - Wild Thing (söngr Óskar Magnússon) - Blindsker - Jón er kræfur karl og hraustur Þetta tókst vel og myndaðist góð dansstemning. Við stefnum ótrauðir á frægð og frama og ekki síst næsta balli í fyrirtækinu. Ég stefni á að setja video af þessum performance á netið, fylgist með ..

20.07. 2003-11:47:10
Minning um mann
Ég fékk vondar fréttir fyrir viku síðan. Fallinn er frá Siggi á Fossi.
Sigga kynntist ég fyrir sléttum 30 árum þegar ég ungur fór í sveit á Fossi á Síðu. Siggi hafði þá nýtekið við búinu af föður sínum Jóni sem bjó þar áfram ásamt konu sinni Fjólu. Siggi var myndarlegur þrítugur maður og ég ellefu ára, sem sagt 19 ára aldursmunur. Siggi varð fljótlega fyrirmyndin mín og óhætt að segja að hann hafi verið mér annar pabbi á þessum mikla mótunartíma mínum. Mér leið strax vel í návist Sigga og náðum við vel saman æ síðan. Siggi var manna sterkastur og gat ég seint hætt að dáðst að þeim eiginleika hans. Ég hafði ekki tölu á þeim mikla fjölda vöðva sem hnykluðust um handleggi hans þegar átökin voru hvað mest en fyrirmyndin var á sínum stað í kolli mínum á leið minni til að ná sama styrk. Ég náði að vísu aldrei sama stað og Siggi í þessum efnum. Siggi kenndi mér jafnaðargeð, ja nú kynnu einhverjir að hlæja, en rólyndi og yfirvegun sveitamannsins var eitthvað sem ekki var hægt að læra af borgarfólkinu. Ég er sannfærður um að þessi lærdómur fylgir mér enn þá í dag og hjálpi mér mikið í starfi. Siggi var áhugamaður um íþróttir og sérstaklega knattspyrnu. Ég dró Sigga gjarnan í fótbolta og var oft hart barist þegar skotið var á tvö mörk í fjárhúsinu. Ég er ekki frá því að fleiri en ein rúða hafi goldið þessa atferlis. Byggður var völlur fyrir neðan húsið og ávallt fundinn tími til að skjóta á mark þrátt fyrir annir dagsins. Svo fór að völlurinn varð að víkja fyrir miklum lystigarði sem Fjóla móðir hans hefur ræktað síðustu árin. Siggi var liðtækur skákmaður og ófá skiptin sem við tókum eina bröndótta eins og Sigga var tamt að segja. Ég held ég verði að viðurkenna að Siggi hafi haft betur í þeim viðureignum.
Sveitalífið og Siggi kenndu mér að vinna. Sagt er að vinnan göfgi manninn og það fann ég í sveitinni. Í þessari vinnu var ekki hugsað um kaup og kjör það var nautn og göfgandi að vinna. Vinnan var skemmtileg og afraksturinn kom á einhvern hátt síðar. Hér var aldrei svikist undan vinnu. Þetta var á tíðum erfið vinna og fannst mér hún því merkilegri. Hér er ánægja sett ofar auði. Í raun fannst mér borgarlífið gríðarlega ómerkilegt og tilgangslaust í samanburði við sveitalífið. Sveitalífið var hið sanna líf sem síðan leiddi til þess að ég ætlaði mér að verða bóndi. Af einhverjum ástæðum varð þó ekkert úr því og ég fylgdi straumnum í borginni.
Árin liðu og Foss var heimsóttur reglulega, kannski ekki eins reglulega og ég hefði viljað en þó var reynt að líta við á hverju sumri. Það var ávallt gaman að hitta Fossfólkið og spjalla við Sigga um daginn og veginn. Siggi var vel að sér í mörgum hlutum og ég áttaði mig ekki á því fyrr en seinna hversu greindur og vel gefinn hann var. Ekki var hægt að merkja það að að Siggi lifði ekki í hringiðunni því í fjarlægðinni gafst honum gott rúm til að velta fyrir sér hlutum.
Ég heimsótti Fjólu og Sigga síðast í septembersól síðasta haust með börnum mínum. Það var eitthvað magnað við það að koma á Foss þann daginn og veðrið einstakt. Siggi lék á alls oddi og spáðum við í spilin í fótboltanum en lokaumferðir voru framundan. Börnin mín fengu að kynnast Sigga og Fjólu og var það mér dýrmætt. Þau fengu einnig að smala fé sem er þeim minnisstætt.
Siggi gekk ekki heill til skógar síðustu 9 árin og gerði sjúkdómur hans honum erfitt fyrir að stunda sín störf. Skiptust á skin og skúrir í þessum illvíga sjúkdómi. Síðustu mánuðir ku hafa verið erfiðir aðstandendum.
Með Sigga er horfinn vænn maður á besta aldri en hann hefði orðið sextugur í desember. Sigurður hverfur alltof fljótt á braut. Einnig er horfinn kafli í sögu búskapar á Fossi.
Siggi var lagður til hinstu hvíldar laugardaginn 19.júli í Prestbakkakirkju. Nánasta fólk hittist síðan á Fossi í góðu veðri og hitt ég þar margan manninn frá fyrri tímum. Þetta var þungbær dagur.
Blessuð sé minning Sigga.

20.07. 2003-10:43:36
Næst er að segja ykkur frá tjaldvagnaferðum mínum.
Frumraunin var á Siglufirði þar sem við dvöldum 2 nætur í miðlungsveðri. Það var ágætt og við nutum tónlistar sem var af fjölbreyttum toga. Áhugaverðast fannst mér að hlýða á búlgarska tónlist sem nemendur í Listaháskólanum fluttu af ákaflega miklu öryggi. Þetta er erfið tónlist í takti en það vafðist ekki fyrir þessum ungu snillingum. Hilmar Jensson gítarleikari fór fyrir grúppunni og fór fimum höndum um gítarinn. Hilmar er hinn íslenski Robert Fripp.
Við tók ein nótt í Skagafirði hvar sólin lék við okkur í um 20 stiga hita. Nú höfum við nýlokið 3 nóttum í Húsafelli í aldeilis frábæru veðri. Ef eitthvað var að þá var mikill hiti. Topphiti dagsins var 26 gráður (hitamælir sundlaugar) en mælirinn í bílnum sýndi mest 25 gráður. Hitinn um miðnætti var hvorki meira né minna en 17 gráður. Í tjaldvagni er ágætt að sofa og betra en tjaldi. 3 dagar í einu virðist þó vera nóg fyrir mig - gamla manninn - og virðist ég þurfa gamla góða rúmið til að ná alvöru svefni. Með okkur á Húsafelli voru Unnur og Patrick. Ekki hefur náðst að fara í útilegur með öðru vinafólki þar sem frí og áætlanir liggja illa saman.

20.07. 2003-10:15:46
Ég ætla fyrst að fara yfir golfárangurinn í júlímánuði. Markmiðið mitt er að fara á undir 50 höggum á alvöru 9 holu golfvelli sem myndi samsvara minna en 100 á 18 holum. Það hefur enn ekki náðst en ég er býsna nálægt því og hef fulla trú að 4 fari að sjást í fyrsta staf eftir hring. Besti árangur í júli er

53 högg á fyrri hring Oddfellowvallar (56 á seinni eða samtals 109)
51 högg á fyrri hring Grafarholtsvallar (56 á seinni 9 eða samtals 107)
53 högg á hinum erfiða Hlíðarvelli í Mosfellsbæ.
52 högg á Húsafellsvelli (par 35). Á þeim velli gekk mér afleitlega fyrstu 3 umferðir og náðist gott skor einungis í fjórðu tilraun. Ég svindlaði reyndar og byrjaði á rauðum á tveimur stöðum þar sem sjálfstraust mitt var farið þverrandi.
Ég tók einnig þátt í móti á Flúðavelli sem er frábær völlur en skorið var lélegt eða 124. Síðan tók ég þátt í Tæknivalsmótinu á Grafarholtsvelli og gekki illa. Þurfti að strika út 4 brautir.


29.06. 2003-22:45:55
senn er þessi mánuður á enda og síðasta tækifæri að bæta við bloggi í júní að renna út. Í alla staði þokkalegur mánuður. Margt hefur gengið vel og ég er oðrinn stoltur tjaldvagnseigandi. Mér varð ljóst eftir fyrstu útilegu mína (Flúðir) að ég er í minni hluta að tvennu leiti, á ekki jeppa (keyri Passat) og á ekki Fellihýsi. Íburðurinn á þessum tjaldstæðum er slíkur að manni verður óglatt og liggur við spýju. Þessi fellihýsi eru nefnd skuldahalar og það eru eflaust nöfn sem hitta í mark. Ég er allavega ánægður með minn tjaldvagn, hann er framfaraskref frá tjaldi og mun hvetja okkur til að kanna land vort betur í sumar - það var tilgangur hans. Annars hef ég spilað allnokkuð golf í júní en framfarir láta á sér standa. Ég er í kringum 60 högg á 9 holum og hef best farið á 58 á Hlíðarvelli. Í fyrra var ég kominn í 51 högg þegar ég var bestur í júlí. Takmarkið er að komast undir 50 högg í sumar. Það er á brattan að sækja. Í gær spilaði ég 3x9 holur á Hlíðarvelli og síðar Korpuvelli. Með mér var Heimir Baldursson og slógumst við í hóp Árna rafvirkja og olíuborpallastarfsmann og konu hans Guðrúnu. Veðrið snerist upp í rigningu í lokin eftir ægifagran sólarmorgun. Í dag dró ég Braga, Gunnu og Alexander frænda í gólf á æfingavellinum Ljúflingi í Heiðmörk. Ég keypti barnakyldu handa Braga. Þótti þeim frændum allgaman að spilinu og voru kappsamir. Ég sjálfur fór þennan par 3 æfingavöll á um 40 höggum þrátt fyrir að para aðeins einu sinni. Það á að vera hægt að fara hann á 35 höggum. Hvað vinnuna varðar gengur allt í vel. Stóru útskiftimálin fyrir noraðan og netkóðabreytingin í Reykjavík tókust vonum framar. Framundan í júlí er Suðurlandsprojektið en upp fara um 10 nýir sendar. Það er vonandi að mannskapurinn haldi þessa miklu vinnu út. Sjálfur fer í frí 2. júli og hef það náðugt.

29.05. 2003-22:49:36
Alveg ágætur dagur á enda. Í gærkveld hélt Fuzzball félagsskapur uppskeruhátið og kvaddi með viðhöfn gömlu Íslandssímabúningana. Fenginn var leynigestur, enginn annar en Atli Eðvaldsson, til að úthluta treyjunum og fylgdu meldingar til leikmanna allra. Ég fékk verðlaun fyrir fagrasta leikinn. Gaman var að ræða við Atla um fyrri afrek hans og einnig um einstaka leikmenn landsliðsins. Atli var feginn að hafa losnað úr starfinu (hann var landsliðþjálfari þangað til í síðustu viku fyrir ykkur íþróttaskertu lesendur). Drukknir voru nokkrir bjórar en haldið heim á leið um 11 leitið. Síðan vakna ég 6:30, sprett á fætur og tek til við að þrífa salernið. Það var þrifið sem aldrei fyrr - enda var ég með umframorku sem þurfti að losa. Um 8 leitið er ég búinn með salernið og morgunverðin en þá rumskar restin af fjsk. Ásgerður gisti hjá Helgu Liv en þær eru að samvaxa æ meir sem uppátækasamar vinkonur. Ég var kominn út í sólríkan garð um 9 leitið og sleikti S-ið. Um hádegisbilið dró ég Gisk og frú ásamt ÁO, HL og GM niður í bæ og fengum við okkur ljúffengt smörrebröd á jómfrúnni. Hjólað var í Nauthóslvík - síðan Fossvog þar sem kaffihlaðborð beið oss. Pælingar þar um að selja þá íbúð fyrir Skuggahverfis hátæknipakka. Skuggalegt mál í alla staði. Ekki gefnar íbúðir. Þú selur þína fínu íbúð í Fossvogi, færð þér helmingi minni íbúð í blokk og borgar 5 Mkr að auki. Í staðinn færðu útsýni yfir Esjuna og ert í röltfæri við pöbbana í bænum. Dagurinn endaði á knattáhorf í ágætist leik KR-ÍA eða Kría , sem KR vann. Hörkuleikur. KR liðið með sinn besta leik og tvíburarnir hreint stórgóðir.

24.05. 2003-20:44:58
jæja jæja - ég flúði Eurovision keppnina og blogga. Einhvern veginn miklu meira gefandi. Í gærkveldi hringdi Gísli Ó (oftast nefndnur Gisk) í mig og dró mig á pöbbarölt. Við fórum á Vínbarinn hvar ég drakk menningarlega tvö hvítvínsglös. Ekki merkilegt vín sem vélað var í mig og næst vel ég spekingslega af vínlistanum. Hákarlinn leit á barinn og settist hjá okkur. Næst lá leið okkar á Thorvaldsen bar en þangað hafði Gisk aldrei komið. Dembdum í okkur tvo bjóra - VIP liðið var ekki á staðnum í þeta sinn. Ég spjallaði við tvær frá Akureyri sem voru komnar til Reykjavíkur til að sameina Mjöll og Frigg, afar áhugaverðar samræður um sápuiðnaðinn. Önnur þeirra brá sér frá og bað mig að passa sætið. en ég forðaði mér með Gisk heim á leið um eitt leytið. Fyrir utan Landssímann spillta og Alþingi standa 22 steypustólpar með óljóst hlutverk. Kannski þetta sé vörn gegn Al Queda sprengjubíl líkt og Enska Þingið hefur komið sér upp. Við fundum þessum stólpum það hlutverk að vera útikamrar og sprændum á þá eins og óðir væru. Einhvern veginn gaman að vera óborgaralegur - anti Citizien - af og til. Of mikill höfuverkur í dag miða við hóflega neyslu. Kom heilmiklu í verk því ég ryksugaði íbúðina og reisti viðbót við vindskýlið í garðinum. Tel ég það fyrirbæri mun hæfara að standa undir nafni að þessu sinni. Bragi tók badminton við mig og er ágætlega hæfileikaríkur í þessu eins og öllu sem hann prófar. Svipar til föður síns ;-) Annars er fjárdráttarmálið hjá höfuðkeppinautinum ótrúlegt mál. Hvernig datt þessum ungu og þekktu mönnum að standa í öðru eins. Hvar er siðferðisvitundin hjá þeim. Hvað skyldu nú margir samstarfsmenn þeirra hafa vitað af þessu? ég þekkti þessa menn nú ekkert en hef hitt téðan Árna Þór örfá skipti. Reyndar á eftir að fá dómsúrskurð - ekki er sekt fyrr en sönnuð er en nokkuð ljóst er að Sveinbjörn féhirðir er sekur. Ekki gott PR mál fyrir Landssímann og ansi veikt að skatturinn skyldi benda þeim á þetta eftir hafa verið að rannsaka bókhald Lífstíls.

23.05. 2003-21:04:57
Sól- fallegt en hryssingsleg norðanátt dagurinn byrjaði á starfsmannafundi hvar Fjarskiptabandið endaði fundinn á einu lagi, nefnilega Eurovision lagi Íslendinga, Open your heart með Britney Haukdal. Undirritaðir yfirblogger speil á rafmagnaðan kassagítar og komst ágætlega frá, jafnvel þótt hann segi sjálfur frá. Afrakstur má sjá á http://www.islandia.is/engill/ogu2.htm en hér er afar stór AVI fæll uppá 50 meg af þessum merka viðburði. Eyddi afgang dagsins í starfsmannaviðtöl. Þess má geta að umrætt rokkband hefur komið áður fram en það var á starfsmannafundi fyrir viku síðan þegar spilað var Vodafone lagið með Dandy Warhole, a bohemian like you og síðan Weezer, Say it isn´t so en þar speil undirrituð gítarhetja á rafmagnsgígjuna sína. Vænta má frekari afreka á þessu sviði á næstunni.

20.05. 2003-22:30:52
var að koma úr mínum fyrsta gólfhring í sumar. Tók hring út á Nesi með Pésa (áður Brúnalandspésa), Símoni og Guðlaugi Magnússyni. Guðlaugur er að hressast og fór hringinn á 41 höggi. Ég var síðastur á 61 höggi en þetta var ok miðað við fyrsta hring í sumar. Ég lofa góðu og fór eina brautina á pari. Guðlaugur er að hressast eins og áður sagði en í síðustu viku var móðir hans grafin mánuði á eftir föður hans. Frábært veður, vellíðan á eftir. Tók Braga á æfingu, honum fer fram. Hann skoraði 2 mörk af harðfylgi. Vinnan byrjaði frekar illa í morgun, ákveðin vandamál - tæknilegs eðlis eru ekki að gleðja alla í kringum mig og þau valda mér svefnleysi.

10.05. 2003-10:28:44
kosningadagur ! það er vermill úti og kuldakastið liði hjá. Framundan: Kjósa rétt Ég er búinn að velja - vel ekki vinstri óreiðu, treysti þeim ekki fyrir landsins stjórn. Í gær djammaði ég fyrsta skipti með hljómsveit, fyrst á trommum (afar gaman) og síðan fór ég um gígjuna mjúkum höndum (fínt líka). Það gæri farið svo að umrætt band troði óvænt upp á starfsmannafundi OGVOÐAFóNS í næstu viku. Einhvern tímann átti ég þann draum að vera í hljómsveit en enginn hringdi. Það var eðlilegt því að ég kunni ekki að spila á hljófæri, núna kann ég pínulítið. Næst: Kosningaúrslit

06.05. 2003-23:12:28
frekar þungur dagur. Ég var þungur í morgun, með hausverk og slen en lét mig hafa það í vinnuna eins og vanalega. Man varla hvenær ég missti úr dag. Svaf illa og krakkarnir komu báðir í bólið það þýðir að ég sef á 20 cm ræmu. Ég dreymdi þar að auki frekar ógeðslegan draum.. get ekki sagt frá honum.

Fátt merkvert í dag. Fór á fund í Landssímanum klukkan 3 og datt á kaffifund Bergþórs, Páls Jóns og Jóns Vald. sem voru að spauga með nafnið Og Vodafone. Þeir bentu á að við hefðum núna yfirburðastöðu með 100 mill. áskrifendur. Ég benti þeim á að rétt væri fyrir Símann að sækja um félagslega hjálp.

Ég kom Braga á æfingu klukkan 5 í knetti. Bragi stóð sig vel og sýndi nýja sóltakta þar sem hann stígur með fótinn ofan á boltann og dregur hann í hina áttina og snýr sér við. Þannig náði hann að plata hópinn og skjóta sér framhjá. Stoltur faðir horfði á framfarir sonarins.

03.05. 2003-19:48:54
önnur tilraun mín við on-line dagbókarfærslur sem heita öðru nafni blogg hvers ástæður mér eru huldar. Á spilaranum er E.S.P. með Miles Davis. Tony Williams er góður þarna. Bókin við hliðina á rúminu er ævisaga Bjarna Benediktssonar. Ólesin við hliðina á rúminu er The Brethren eftir Grisham. Bókin er síðasta tilraun mín við Grisham áður en ég ákveð að skilja að fullu við hann. Það var kalt en fagurt í dag. Sundferðin var fín, ég var mikil hetja og synti 300 metra en stundaði annars mína útgáfu af dvergakasti sem felst í því að fleygja krökkunum í vatnið með ýmum tilþrifum. Dagurinn hefur skilað eilítið dekkri húð sem er jú mælikvarðinn á hreysti manna við útivist og því góður mælikvarði á heilbrigt líferni hafi menn ekki stytt sér leiðir með Spánarferð. Sumarfríið er óskipulagt sem truflar litla þjóðverjann í mér. Börnin vilja tívolí í Köben en það leysir bara einn dag af 30. Ég óska eftir hjálp. Sá the The Pianist sem er ákaflega vel gerð mynd um klassískt efni, afdrif Gyðinga í WW2. Gerist að þessu sinni í Varsjá og er óvenju raunsæ og þörf áminning á veikleika mannkynsins fyrir 60 árum eða svo. Mennirnir þurfa að horfa á myndir sem þessar reglulega í þeirri viðleitni að verða betri og skilningsríkari. Skyldi það vera hægt? Hliðstæðir atburðir eru að gerast víða í nútímanum. Einhvern veginn óhugsandi að þetta gerist í Evrópu í dag, upplýsingin er svo mikil og fátækt ekki sú sama og 1935. Langvarandi atvinnuleysi og sívaxandi í Þýskalandi er áhyggjuefni. Heimagerð Pizza í matinn. Ímeil vegna vinnunar, ýmis skjöl með kostnaðartölum eru send fram og til baka en Q1 uppgjör er í næstu viku. Síðan á Ebay þar sem ég er með nokkur tilboð í gangi - Örn að spara í innkaupum - sniðugur strákur. Það gæti verið að ég dyttaði að compostition no 3 sem hefur vinnuheitið \"yet another talk to the wind\" með til´vísun í lagið Talk to the wind enda ræni ég óhikað stefi ú því eðallagi. Lagið er hrátt núna. Skemmtilegur prosess að semja og setja sama lög. Bakheilinn að störfum - kreatífur prosess.

03.05. 2003-13:02:35
fagur laugardagur Kuldahretið er að líða hjá og sumarfiðringur fór að gera vart við sig aftur. Ég sló garðinn minn síðasta mánudag eða þann 28. apríl. Þetta er sennilega met enda heitasti vetur í 130 ár síðan eða síðan mælingar hófust á Stykkishólmi. Þrátt fyrir það var frost í gærmorgun eða -1 gráða á mælinum í bílnum þegar lagt var af stað í vinnuna klukkan 8:32. Dró krakkana út á völl í fótbolta - æfði þar Braga og Ragnar vin hans og síðan var skorað á þrjá 8 ára stráka. Reyndar var farið í vítaspyrnukeppni með mig í marki. Drengirnir ungu skutu 40 skot og skoruðu aldrei !! Bragi stóð sig ágætlega í leiknum en var annars hugar eins og hann á til. Hann vann til gullverðlauna um daginn í fyrstu fótboltakeppninni (skoraði eitt mark) og gengur með medalíuna við öll tækifæri. Við ætlum að fara í sund og sleikja sólina- aðeins of kalt að hjóla í Laugardagslaugina. Planið er að koma við í Kringlunni og skoða þar Schumacher kappakstursbíl sem fyrirtækið Og sem ég vinn hjá flutti inn í þeim tilgangi að monta sig og draga athygli verðandi viðskiptavina. Já þett er orðið lengsta bloggið mitt frá upphafi vega og sennilega lengsta dagbókarfærsla frá upphafi. Ólafur Manhattanmaður og lampahönnuður benti mér á aumt blogg mitt á ossi.blogpspot.is og mér varð ljóst að úr varð að bæta. Krakkarnir eru líka farnir að blogga því Guðrún setti upp blogg application á heimilistölvuna í nótt - tilviljun ? Sjáum hvernig þetta þróast -en næst er það Schumacher ..